Endursendingar

Endursending lyfja

Parlogis tekur á móti endursendum lyfjum ef samningur er um slíkt við umboðsaðila lyfsins og endursending fellur undir neðangreindar reglur.

Vinsamlegast skráið endursendinguna í endursendingarkerfið á mitt.parlogis.is

Hægt er að sækja aðgang inn á mitt.parlogis.is en biðja þarf um aðgang að endursendingarkerfinu í gegnum þjónustuverið. Leiðbeiningar fyrir rafræna endursendingarkerfið má nálgast hér.

Í undantekningartilfellum er hægt að fylla út endursendingarseðil og láta fylgja með endursendingunni (Smelltu hér til að nálgast endursendingarseðil).

Hægt er að senda fyrirspurnir um endursendingar á tölvupóstfang endursendingadeildar Parlogis sem er: [email protected]

Parlogis endurgreiðir að fullu skráð sérlyf, sem seld eru með styttri fyrningu en 6 mánaða, ef þau berast innan mánaðar frá fyrningu og voru framleidd með lengri fyrningu en 1 ár.

  • Skrá skal reiknisnúmer sendingar á endursendingarseðilinn.

Afskráð lyf eru endurgreidd að fullu frá ákveðnum framleiðendum, ef þau berast Parlogis innan 3ja mánaða frá afskráningu.

Lyf, sem send eru til Parlogis innan mánaðar frá tilkynningu um innköllun, eru endurgreidd að fullu.

Skemmd og/eða gölluð lyf, sem berast Parlogis, ásamt skýringum á skemmdum og / eða galla, eru endurgreidd að fullu. Skemmdum vörum skal ekki pakka með óskemmdum vörum og skal ekki endursenda brotin ílát.

Parlogis endurgreiðir að fullu þau lyf, sem skemmast í flutningi, ef þau eru endursend innan viku frá pöntun og Parlogis hefur samþykkt umræddan flutningsaðila.

Parlogis leiðréttir mistök í afgreiðslu lyfja eins fljótt og hægt er, kaupanda að kostnaðarlausu. Rangt afgreiddum lyfjum verður þó að skila innan viku frá afgreiðslu.

Parlogis endurgreiðir lyf á fullu heildsöluverði, ef eftirtalin skilyrði eru uppfyllt:

  • Lyfið hefur geymsluskilyrði við stofuhita.
  • Lyfinu er skilað innan viku frá pöntunardegi.
  • Afrit af sölureikningi fylgir með sendingunni, eða ef númer hans skráð á endursendingarseðilinn.
  • Lyfið er í heilli, órofinni pakkningu framleiðanda og engin merki eru um límmiða eða aðrar merkingar söluaðila á pakkningunni.
  • Lyfjafræðingur hefur staðfest, með undirskrift á endursendingarseðilinn, að lyfið hafi verið geymt við réttar aðstæður frá móttökudegi og sé söluhæft að hans mati.
  • Að lyfið sé flutt með flutningsaðila samþykktum af Parlogis.

Kælivörur/frystivörur eru ekki teknar til baka nema sértaklega sé um það samið.  Ef samþykki liggur fyrir um endursendingu á kælivöru/frystivöru skal flutningsmáti unnin í samráði við Parlogis

Í sérstökum undantekningartilvikum má skila lyfjum til Parlogis af öðrum ástæðum en nefndar eru hér að ofan. Áður en það er gert, skal þó hafa samband við ábyrgðarhafa Parlogis.

Endursending vara

Um endursendingar vara gilda eftirfarandi reglur. Hægt er að senda fyrirspurnir um endursendingar á tölvupóstfang endursendingadeildar Parlogis sem er: [email protected]

Reglur um endursendingar vara (á ekki við lyf)

Öllum endursendum vörum þarf að fylgja endursendingarseðill, skrá þarf reikningsnúmer á endursendingarseðilinn.
(Hægt er að nálgast endursendingarseðil Parlogis hér)

Merkja þarf sendinguna með nafni sendanda. Ekki er tekið við endursendum vörum af öðrum ástæðum en þeim, sem að hér að neðan greinir, nema um annað hafi verið sérstaklega samið.

Fyrnd vara er ekki endurgreidd, nema sérstaklega hafi verið um það samið við söluaðila.

Skemmd og/eða gölluð vara, sem endursend er ásamt skýringu á skemmd og/eða galla, er endurgreidd að fullu.

Vara er endurgreidd að fullu, ef hún er endursend innan mánaðar frá tilkynningu um innköllun.

Skila má vöru vegna rangrar pöntunar að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  • Að varan hafi geymsluskilyrði við stofuhita.
  • Vörunni sé skilað innan viku frá afgreiðslu og í samráði við þjónustuver Parlogis.
  • Að varan sé í heilli og órofinni pakkningu frá framleiðanda.
  • Útfylltur endursendingarseðill fylgi með sendingunni.
  • Varan sé flutt með flutningsaðila sem Parlogis samþykkir.

Mistök í afgreiðslu vöru frá Parlogis eru að sjálfsögðu leiðrétt eins fljótt og hægt er, kaupanda að kostnaðarlausu. Rangt afgreiddar vörur verða þó að berast innan viku frá afgreiðslu.

Parlogis endurgreiðir að fullu þær vörur, sem skemmast í flutningi, ef þær eru endursendar innan viku frá pöntun og Parlogis hafi samþykkt flutningsaðilann.

Kælivörur/frystivörur eru ekki teknar til baka nema sértaklega sé um það samið.  Ef samþykki liggur fyrir um endursendingu á kælivöru/frystivöru skal flutningsmáti unnin í samráði við Parlogis