Saga Parlogis

Parlogis byggir á traustum grunni sem nær aftur til ársins 1919

Í upphafi fólst starfsemin í innflutningi á lyfjum, lyfjagerðarefnum og hjúkrunarvörum fyrir lækna og heilbrigðisstofnanir. Í dag er kjarninn í starfsemi okkar að þjónusta fyrirtæki í heilbrigðisgeiranum með víðtækri vörustjórnun.

1919

Stefán Thorarensen apótekari fær lyfsöluleyfi þann 25. mars 1919 með skjali frá konungi Danmerkur. Í kjölfarið stofnar hann Laugavegs apótek og heildsöluna Stefán Thorarensen hf.

Í upphafi fólst starfsemin í innflutningi á lyfjum, lyfjagerðarefnum og hjúkrunarvörum fyrir lækna og heilbrigðisstofnanir. Síðar hóf Stefán framleiðslu á lyfjum og árið 1930 var fyrsta töflusláttarvélin keypt.

Lyfjaverslun ríkisins stofnuð og var hluti af Áfengisverslun ríkisins.

Áfengisverslunin var til húsa í Nýborg við Skúlagötu og þar var lengi eina áfengisútsalan í bænum. Skipulögð framleiðsla innrennslislyfja hófst síðar hér á landi eða árið 1954.

1921

1967

Austurbakki hefur starfsemi við innflutning á ýmsum vörum.

Starfsemin fólst í innflutningi á þróttavörum, skóm og hjólbörðum. Síðar bættust hjúkrunarvörur, lyf og áfengi við vöruúrvalið.

Lyf hf. stofnað.

1970

1994

Lyfjaverslun ríkisins einkavædd og fær nafnið Lyfjaverslun Íslands.

Hjúkrunarhlutinn færist til Ísmed og lyfjahlutinn til Ísfarm. Dreifingin sameinast Lyfjadreifingu árið 2002.

Fyrirtækið Lyfjadreifing stofnað.

Starfsemin fólst í dreifingu á lyfjum og öðrum vörum um allt land.

1995

2002

Dreifingardeild Lyfjaverslunar og Lyfjadreifing sameinuðust í upphafi árs 2002 undir nafni Lyfjadreifingar og voru á þeim tíma eitt af dótturfyrirtækjum Lífs hf.

Í ársbyrjun 2004 varð Lyfjadreifing mun sjálfstæðara félag en áður, með eigin stjórn og verulegum aðskilnaði frá rekstri Lífs hf og skapaði það sjálfstæði grunn að núverandi starfsemi.

2004

2005

Nafni Lyfjadreifingar var breytt árið 2005 í Parlogis enda þótti nafnið ekki nógu lýsandi fyrir starfsemi fyrirtækisins, sem býður alhliða þjónustu við vörustjórnun innan heilbrigðis-og heilsuvörugeirans.

Starfsemi Parlogis og Icepharma flyst undir móðurfélagið Ósa sem veitir dótturfélögunum stoðþjónustu á sviði upplýsingatækni, mannauðsstjórnunar, við umslýslu fjármála og í tengslum við hlítni og gæðastarf.

2022