Þjónusta Parlogis
Parlogis sér um víðtæka vörustjórnun fyrir fjölmörg markaðsfyrirtæki í heilbrigðisgeiranum og leitast við að sníða lausnir vörustjórnunar að ósk viðskiptavina hverju sinni. Allir viðskiptavinir Parlogis nýta sér vöruhýsingu auk þess sem Parlogis getur veitt framúrskarandi þjónustu á öllum stigum aðfangakeðjunnar allt frá birgðastýringu til innheimtu.
Með því nýta þjónustu Parlogis í vörustjórnun til fulls geta markaðsfyrirtæki einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli í sínum rekstri, þ.e. að sinna sölu- og markaðsstarfi ásamt þjónustu við viðskiptavini.
Fyrirtæki sem vilja leggja áherslu á faglega þjónustu við viðskiptavini, markaðs-og kynningarstarf geta þannig úthýst vörustjórnun, allt frá innkaupum til sölu og innheimtu til Parlogis.

Vörustjórnun frá A til Ö

Vörustjórnun frá A til Ö

Þær lausnir sem markaðsfyrirtækin geta valið úr eru m.a.:
- Birgðastýring
- Innkaup
- Tollafgreiðsla
- Vörumóttaka
- Geymsla
- Móttaka pantana
- Dreifing og innheimta reikninga
Auk þess eru í boði ýmsar sérlausnir s.s. merkingar, dreifing á bæklingum, bókhalds-og tölvuþjónusta.
Allir viðskiptavinir Parlogis geta fengið beinan aðgang að söluupplýsingum og þannig fylgst jafnóðum með sölu og birgðastöðu á eigin vörum.
Parlogis Special – sértæk innkaup á lyfjum og neyðarþjónusta
-
Parlogis Special leggur sitt af mörkum til að tryggja að lífsnauðsynleg lyf séu aðgengileg á Íslandi, jafnvel þegar þau eru ekki á markaði eða upp kemur skortur á skráðum lyfjum. Með öflugu alþjóðlegu samstarfsneti og áralangri reynslu getum við brugðist hratt við þegar mikið liggur við.
-
Við höfum í áraraðir útvegað íslensku heilbrigðiskerfi lyf í neyðartilfellum, allt frá mótefnum við eitrunum til bóluefna og sértækra meðferða. Slík verkefni krefjast hraða, nákvæmni og samvinnu – sem eru kjarninn í okkar starfsemi.
-
Allar nýjar vörur fara í gegnum ströng ferli og gæðaeftirlit til að tryggja öryggi sjúklinga og áreiðanleika birgja. Þannig byggjum við upp traust og tryggjum að heilbrigðisstofnanir geti treyst á okkur þegar á reynir.
-
Beiðnir og ábendingar má senda á netfangið special@parlogis.is.
Árlegar þjónustukannanir staðfesta gæði þjónustunnar
Parlogis framkvæmir árlega þjónustukönnun á meðal viðskiptavina þar sem óháð markaðsrannsóknarfyrirtæki sendir út spurningalista til apóteka, sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana. Niðurstöður könnunarinnar hafa um árabil sýnt ótvírætt fram á að Parlogis veitir heilbrigðiskerfinu framúrskarandi þjónustu og áreiðanleika í fremstu röð á Íslandi.






